Kleifaberg með týpu 9 í fyrsta túr
Kleifabergið er núna með nýju hlerana sína sem er 8fm týpa 9 í fyrsta túr. Samkvæmt því sem Björn Valur segir að þá eru þeir að standa sig vel, jafn léttir í bæði drætti og hífingu eins og eldri týpa 12 sem hann var með og ef eitthvað þá eru þeir stöðugri.
Björn var mest búinn að fara með þá á 220 faðma og var sáttur við frammistöðuna og ætlar að láta okkur vita þega meiri reynsla er komin á þá.








